Lélegur sjónvarpsmaður.

Ég var að enda við að horfa á leik Man. Utd. og Liverpool sem auðvitað endaði eins og allir vissu fyrirfram, annar lýsandi leiksins mun heita Tryggvi Guðmundsson og var svo áberandi stuðningsmaður Liverpool að það var skelfilegt að hlusta á þetta, menn sem eru að taka svona að sér VERÐA að gæta fyllsta hlutleysis, hann var jafnvel verri en þegar mannvitsbrekkan Arnar Björnsson var að lýsa leikjum Leeds í þá tíð að þeir voru knattspyrnulið,

GO UNITED.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tryggvi er Arsenal maður en það hjálpar honum samt lítið

THFC (IP-tala skráð) 3.3.2007 kl. 15:00

2 Smámynd: Jónína Hjaltadóttir

Er ekki eiinhæft að horfa endalaust á karla elta tuðruna?

Jónína Hjaltadóttir, 3.3.2007 kl. 17:11

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Samhryggist þér Pétur með ósigurinn.

Svava frá Strandbergi , 3.3.2007 kl. 18:11

4 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Það var aldeilis ekki ósigur, mínir menn unnu eins og alltaf.

Pétur Þór Jónsson, 3.3.2007 kl. 18:17

5 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Guðmundur ég bara neita að trúa því að þú horfir ekki á fótbolta, auðvitað vann mitt lið í dag eins og alltaf.

Pétur Þór Jónsson, 3.3.2007 kl. 18:28

6 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Jónína mín, eru karlar ekki alltaf að elta tuðruna, hahahaha.

Pétur Þór Jónsson, 3.3.2007 kl. 18:29

7 identicon

Sástu United mennina fylgjast með Barcelona-Liverpool leiknum? Það var yndislegt hvað þeir áttu erfitt með að dásama leik Liverpool þá ... 

  • Sir Alex Ferguson viðurkenndi að heppnin hefði verið með Manchester United þegar liðið lagði Liverpool 0-1 á Anfield Road í dag. Sigurmarkið skoraði John O'Shea á 93. mínútu þegar hann fyldi á eftir þegar Jose Reina missti frá sér aukaspyrnu Ronaldo. Þetta voru einu skot United á rammann í dag. Framan af leik lá lið Liverpool á gestum sínum og hélt uppi föstum ferðum upp vængina.
  • „Það verður að segjast að Liverpool liðið var frábært. Við vorum heppnir í dag og sluppum oft naumlega. Pressuvörn Liverpool sló taktinn úr leik okkar og þeir mega telja sig svikna. Þessi sigur skiptir okkur miklu máli, en eins og ég sagði þá vinnast svona leikir í meistaraárum. Við skoruðum á lokamínútunum gegn Fulham um seinustu helgi og það gerðum við aftur í dag. Það þarf heppni til að verða meistari og sú lukka hefur verið með okkur seinustu tvær vikurnar.“

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 3.3.2007 kl. 20:02

8 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Vitanlega var United liðið heppið í dag, ég skal vera fyrsti maður til að viðurkenna það, en það er að nýta færin, eða réttara sagt eina færið, þetta er víst meistaraheppni.

Pétur Þór Jónsson, 3.3.2007 kl. 22:16

9 Smámynd: Svava frá Strandbergi

 Þarna sérðu Pétur, ég skil hvorki upp né niður í fótbolta. Ég hélt að þið hefðuð tapað. Hí hí hí... En til hamingju með sigurinn segi ég þá náttúrulega.

Svava frá Strandbergi , 3.3.2007 kl. 22:59

10 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Þakka þér fyrir, en ég var bara að gera athugasemd um hlutdrægni lýsandans.

Pétur Þór Jónsson, 4.3.2007 kl. 18:11

11 Smámynd: Jónína Hjaltadóttir

Karlar eru alltaf að eltast við eitthvað, s.s. bolta, kerlingar, bíla, laxa, metorð, golfkúlur og skottið á sjálfum sér.

  

Jónína Hjaltadóttir, 5.3.2007 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Pétur Þór Jónsson
Pétur Þór Jónsson

Tónlistarspilari

Creedence Clearwater Revival - The Midnight Special
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband