Klámkonan í fréttunum.

Eg hefði gaman af því að heyra frá ykkur comment á viðtalið sem var í fréttunum í kvöld við konu sem virðist vera í fyrirsvari fyrir þennan hóp sem er að koma til landsins.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Ég átti svo sem ekki von á öðru en það talskona þessa hóps myndi þvertaka fyrir að nokkur tengsl væru á milli kláms, barnakláms og kynlífsþrælkunar. 

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 19.2.2007 kl. 23:24

2 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Þá kemur þessi vangavelta mín, það er kona sem er þarna í fyrirsvari, hvað er í gangi þarna.

Pétur Þór Jónsson, 20.2.2007 kl. 01:19

3 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Þeim hefur kannski þótt það koma betur út að  hafa konu í forsvari. Hins vegar má líka benda á að eru ekki allar konur feministar og það eru ekki einungis karlar sem selja konur og börn.  Konur og börn eru hins vegar í meirihluta fórnarlamba.

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 20.2.2007 kl. 09:27

4 identicon

Það eru engin tenglst og hættu að ljúga

http://www.hawaii.edu/PCSS/online_artcls/pornography/prngrphy_rape_jp.html

http://www.law.stanford.edu/display/images/dynamic/events_media/Kendall%20cover%20+%20paper.pdf

http://www.ojp.usdoj.gov/bjs/glance/tables/4meastab.htm



http://www.ncbi.nlm.nih.gov/entrez/query.fcgi?cmd=Retrieve&db=PubMed&list_uids=11351835&dopt=Citation

 

Feminstar ljúga! minnsta kosti skoðaðu þetta, rannsóknir gerðir af vísindamönnum sem sýna fram á það að klám er í raun ekki skaðlegt.

 

Ekki gleypa við hræðsluáróðinum úr herbúðum stigamóta og álika öfgahópum .

 

Lifi frelsi Lifi lýðræðI!

Butcer (IP-tala skráð) 20.2.2007 kl. 22:22

5 Smámynd: Örvar Þór Kristjánsson

Sæll Pétur

Þú ert býsna harðorður í garð okkar sem erum þér ekki sammála inná síðu Sóleyjar Tómasdóttur.  Við erum klámhundar sem erum óþroskuð og ég veit ekki hvað og hvað.  Nú vil ég ekki gera frekari leiðindi úr þessum dónalegu og málefnanlegu ummælum heldur fá rök þín fyrir því hvers vegna þessi hópur megi ekki sækja okkar ágæta land heim.  Hvaða sannanir hefur þú fyrir ólöglegum fyrirætlunum þessa fólks?  Á hvaða grundvelli ber að meina þeim aðgangi? Lagalegum, siðferðislegum?  Á þá ekki að gilda hið sama um umhverfissinna sem vitað er að skemma oftar en ekki eignir og brjóta íslensk lög.  Á bara ekki að banna þá öllum umhverfissinnum að koma til landsins? Hvar liggur munurinn? Hentisemi ?

Mín skoðun er sú að klámiðnaðurinn er fjölbreyttur og hefur margar hliðar.  Ekki bara skuggahliðar.  Það er fullt af venjulegu, heiðvirðu góðu fólki sem nýtir sér klámbúðir, kaupir sér leikföng og annað til þess að krydda upp kynlífið með maka sínum eða mökum.  Er það glæpsamlegt eða óeðlilegt? Á að vísa þessu fólki úr landi?

Þetta er bara mín sýn á þessu máli, ekkert illa meint.  Er bara venjulegur maður út í bæ, tel mig engan klámhund og reyndar enga tepru heldur.  Væri gaman að sjá svör frá þér því ég efast ekki um að þú hafir sterkar skoðanir á þessu máli.

Örvar Þór Kristjánsson, 21.2.2007 kl. 13:57

6 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Sennilega hef ég tekið heldur sterkt til orða, ekki var meiningin að særa aðra eða halda fram forræðishyggju, er alveg nógu stór í mér til þess að biðja afsökunar á því, það er bara með þetta mál eins og svo mörg önnur að skoðanir eru ákaflega skiptar og þá hættir fólki oft til að fara offari, samt sem áður finnst mér óæskilegt að fá svona heimsóknir en verð að vel athuguðu máli að viðurkenna að við sem erum á móti þessu höfum sennilega gefið þessu bestu auglýsinguna, sennilega er betra heima verið en út farið.

Pétur Þór Jónsson, 22.2.2007 kl. 13:51

7 Smámynd: Örvar Þór Kristjánsson

Gott svar..

Örvar Þór Kristjánsson, 22.2.2007 kl. 23:50

8 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Þakka þér fyrir, við verðum að vera nógu stór til þess að viðurkenna ef við gerum mistök.

Pétur Þór Jónsson, 23.2.2007 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Pétur Þór Jónsson
Pétur Þór Jónsson

Tónlistarspilari

Creedence Clearwater Revival - The Midnight Special
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband